Við ætlum að bjóða upp á sveigjanlega leigu á ESWING tækjum, bæði til skemmri og lengri tíma. Markmiðið er að gera fleirum kleift að njóta golfsins með minni líkamlegri áreynslu – án þess að þurfa að fjárfesta strax í eigin tæki.
Í boði verða tvær ólíkar lausnir. ES-M12-3 með sæti hentar þeim sem vilja geta keyrt á milli högga og minnka þannig gönguna og álagið á vellinum. ES-T3 golfkerran hentar hins vegar þeim sem vilja ganga völlinn en sleppa við að ýta eða draga golfkerruna. T3 er bæði með Follow Me, þar sem kerran fylgir kylfingnum sjálfkrafa, og fjarstýringu.
Frá einum degi upp í heilt golftímabil
Leigutíminn verður sveigjanlegur, allt frá dagsleigu upp í leigu yfir heilt golftímabil. Þannig getur hver og einn valið þá lausn sem hentar aðstæðum og notkun.
Leiga getur verið sérstaklega hentug fyrir þá sem eru ekki vissir um hvort slíkt tæki henti þeim og vilja prófa það almennilega áður en tekin er ákvörðun um kaup. Hún getur einnig verið góð tímabundin lausn fyrir kylfinga sem glíma við meiðsli eða skerta hreyfigetu um tíma og vilja halda áfram að spila golf án þess að þurfa að kaupa eigið tæki.
Markmiðið er einfalt: að gera fleirum kleift að komast út á golfvöll og njóta leiksins á sínum forsendum.
Verð og mismunandi leigumöguleika verður hægt að skoða í verðlista á heimasíðu ESWING.