Við höfum nú gert íslenskar notendahandbækur og leiðbeiningar fyrir ESWING tækin aðgengilegar beint á heimasíðunni.
Markmiðið er að gera það eins einfalt og mögulegt fyrir eigendur ESWING tækja að nálgast réttar upplýsingar þegar á þarf að halda – hvort sem verið er að setja tækið upp, rifja upp virkni þess eða undirbúa það fyrir næsta golftímabil.
Á síðunni Notendahandbækur og viðhald má nú finna leiðbeiningar fyrir:
• ES-M12-3 (Hægt að nota sem link að skjali)
• ES-1388 / ES-1388 PRO (í vinnslu)
• ES-T3 Follow Me (í vinnslu)
Þar verða einnig upplýsingar um viðhald og umhirðu tækjanna, meðal annars hvað gott er að yfirfara reglulega og hvernig best er að ganga frá tækinu eftir golftímabilið.
Betri þjónusta eftir kaup
Við viljum að þjónustan hætti ekki þegar tækið hefur verið afhent. Þess vegna erum við einnig að vinna að því að gera upplýsingar um viðhald, varahluti, verkstæði og þjónustu aðgengilegri fyrir eigendur ESWING tækja á Íslandi.
Leiðbeiningarnar verða uppfærðar eftir þörfum og nýjum upplýsingum bætt við síðuna.
Notendahandbækur og viðhald má finna neðst á ESWING.IS