Við hjá ESWING Íslandi leggjum mikla áherslu á góða þjónustu og öruggt viðhald tækjanna til framtíðar.
Nú standa yfir viðræður við nokkur viðurkennd fagverkstæði sem hafa sýnt áhuga á að taka að sér reglulegt viðhald og viðgerðir á ESWING-tækjum. Þjónustan gæti meðal annars falið í sér almenna yfirferð, smurningu, herslu á skrúfum og festingum, skoðun á hjólum og öðrum hreyfanlegum hlutum ásamt bilanagreiningu og viðgerðum eftir þörfum.
Markmiðið er að eigendur ESWING-tækja geti fengið faglega og aðgengilega þjónustu hér á landi og þannig tryggt sem best öryggi, virkni og endingu tækjanna.
Við vonumst til að samningur og formlegt samstarf verði komið á fyrir áramót. Nánari upplýsingar um verkstæði, verð og fyrirkomulag þjónustunnar verða birtar um leið og samkomulag liggur fyrir.