NÝTT - M12-1 Plus (væntanlegt í mars 2027)
Öflugur 2000W mótor og góð drægni
ESWING ES-M12-1 Plus er öflugt og fjölhæft rafknúið farartæki, búið 2000W burstalausum mótor. Tækið nær um 14–20 km/klst. hraða og drægni er allt að 30–45 km, eftir aðstæðum, undirlagi, þyngd notanda og aksturslagi.
Snjallt rafhlöðustjórnunarkerfi (BMS) ver rafhlöðuna og stuðlar að auknu öryggi og lengri endingartíma hennar. Hleðslukerfið styður 100–240V, 50/60Hz.
Fellur saman á aðeins 1 sekúndu
M12-1 Plus er hannaður með einfaldleika og þægindi í fyrirrúmi. Hægt er að brjóta tækið saman á aðeins 1 sekúndu, sem auðveldar bæði flutning og geymslu.
Auðvelt er að koma tækinu fyrir í bíl eða geyma það þegar það er ekki í notkun.
Öruggt og þægilegt í akstri
Tækið er búið vélrænu og rafrænu hemlakerfi með læsivörn, sem stuðlar að öruggri og stjórnaðri hemlun.
10 tommu dekk veita góð akstursþægindi og henta vel á fjölbreyttu undirlagi, þar á meðal ójöfnum stígum og yfir hraðahindranir.
Nútímaleg tækni og snjallir eiginleikar
M12-1 Plus býður upp á fjölbreytta eiginleika sem gera notkunina einfaldari og þægilegri:
- LED-skjár
- Cruise Control / hraðastillir
- Mismunandi akstursstillingar
- Tenging við snjallsíma-app
- Hugbúnaðaruppfærslur
- NFC-kort til að virkja tækið
- Innbyggt hleðslukerfi
- Einföld hleðsla með einum kapli
Rafhlaðan tekin úr á einfaldan hátt
Rafhlaðan er hönnuð þannig að hægt er að losa hana fljótt úr tækinu og hlaða sérstaklega.
Þetta gerir hleðslu mun þægilegri, sérstaklega þegar tækið sjálft er geymt þar sem ekki er auðvelt að komast í rafmagn.
Fjölbreyttir aukahlutir
Ýmsir aukahlutir eru fáanlegir fyrir ES-M12-1 Plus til að aðlaga tækið betur að notkun hvers og eins.
Meðal aukahluta eru:
- Sæti
- Regnhlíf
- Sandílát fyrir golfvöllinn
Sandílátið er ætlað fyrir sand eða sand/fræblöndu sem hægt er að hafa meðferðis til að gera við kylfuför (divots) á golfvellinum.
Með aukahlutunum er hægt að gera M12-1 Plus enn betur útbúið fyrir golf og auka bæði þægindi og notagildi tækisins.
ES-M12-1 Plus – öflugt tæki fyrir fjölbreyttar aðstæður
Með 2000W mótor, allt að 45 km drægni, 10 tommu dekkjum, hraðastilli, NFC, snjallsímatengingu og lausri rafhlöðu sameinar ESWING ES-M12-1 Plus afl, drægni og þægindi í einu tæki.
Samanbrjótanleg hönnun og fjölbreyttir aukahlutir gera tækið sérstaklega hentugt fyrir þá sem vilja öflugt og þægilegt farartæki fyrir golf, útivist og daglega notkun.